FJÖLNIR GÍSLASON
Fjölnir Gíslason útskrifaðist frá Alþjóðlega leiklistarskólanum í Kaupmannahöfn (CISPA) árið 2019. Síðan þá hefur hann starfað við bæði leikhús og kvikmyndir, hlaðvarpsgerð, myndbandsgerð, tónlist og lýsingarhönnun í leikhúsum, bæði hérlendis og erlendis.
Það hefur sennilega hjálpað í allri þessari tæknivinnu að hann hafði áður sótt sér nám við Fjölbrautarskóla Vesturlands þar sem hann öðlaðist bæði stúdentspróf og sveinspróf í rafvirkjun og útskrifaðist þaðan 2011.
Reynslan hans Fjölnis er víðtæk, en þó allra helst er hann reynslu ríkastur í lýsingarhönnun og myndbandsgerðum.
Fjölnir hefur framleitt þó nokkur verk í atvinnuleikhúsum landsins t.d KANNIBALEN, UNDIR og það nýjasta væri ÚTKALL (heimildarleiksýning upp úr einum vinsælustu bókum íslendinga) sem sýnt verður í Hörpunni í desember 2026.
Það að framleiða sýningar sjálfur hefur kennt Fjölni að leita sér enn frekari þekkingar í bæði markaðsgerð og auglýsingum, en líka tæknilegu hliðinni á að vera bakvið myndavélina.